. . .
|
|
. . .
|
|
Upp bratta brekku
í mótvindi
göngum við tvö
Sitjum svo saman
með sprungnar varir
í þriggja manna stól
Í grænum garði
við húsið okkar
sitjum við tvö
í þriggja manna stól
. . .
|
|
Snjór ljós snjór ljós
ljós snjór ljós snjór
Bylgjast upp fjallið og verður að steini
Snjór ljós snjór ljós
ljós snjór ljós snjór
Ég sé ekki neitt
ég sé ekki neitt
En ég veit að hér er snjór
og ég veit að hér er ljós
. . .
|
|
Tifa strá í blístri
lifa grönn í nístingskalda
sofa laust er lægir
Ýfir sjó í auga og eista
rífur dropans undiralda
andann af vörum
Svífur grjót í fuglatísti
en hvergi bifast fargið falda
né sefast augnaægir
. . .
|
|
Við fórum yfir frosinn mosamóa
og rauða runna
rauða runna, rauða runna
Við fórum yfir gula heyhóla
svo snérum við við
snérum við við, snérum við við
Þá skein sól á heyhóla
þá skein sól á heyhóla
. . .
|
|
Þú beist laust í höku mína
tennurnar blautar í gegn
sykurmolar dýft í kaffi
dýft í regn
Og við hlógum eins og rigning
og við hlógum eins og rigning
Þeir bitu laust í ökkla okkar
dvergvaxnir fuglar í lostahug
dúnsængurtittlingar, maríuerlur
bitu í ökkla, við hófumst á flug
Og við hlógum eins og rigning
og við hlógum eins og rigning
Þú hélst fast um ristilinn
við emjuðum af gleði
sólargeislar drápu á gluggann
það var kominn morgunn
það var kominn morgunn
Og við hlógum eins og rigning
og við hlógum eins og rigning
og við hlógum eins og rigning
og við hlógum eins og rigning
. . .
|
|
Útá miðjum sjónum
útá miðjum sjónum
ég vil leggja veg hér
ég vil leggja veg hér
ég vil veg
ég vil veg
ég vil veg hér
Flutt ber heill til raða
stutt er milli staða
ég vil byggja brú hér
ég vil byggja brú hér
ég vil byggja brú
ég vil byggja brú
ég vil byggja brú hér
. . .
|
|
Abbastúfur,
hnýttu mér morgunþveng
vertu sperrikerti í minni innri blóðmör
vertu þrek mitt í barnaafmælum
sem og á hrunsins
sorgarblikum
Strjúktu vindhviðum hughreystandi um vangann
Abbastúfur,
lofaðu að jórtra mig
þegar ég hef verið étinn og tugginn
lofaðu að vera blíður
við lamaða, og misheppnaða
skyldi ég endurholdgast
Strjúktu vindkviðum hughreystandi um vangann
strjúktu vindkviðum hughreystandi um vangann
strjúktu vindkviðum hughreystandi um vangann
strjúktu vindkviðum hughreystandi um vangann
til öryggis
. . .
|
|
Ég ætla aldrei
ég ætla aldrei
ég ætla aldrei
að lofa neinu aftur
Ég ætla aldrei
ég ætla aldrei
ég ætla aldrei
ég ætla aldrei að svíkja neitt aftur
Sjáðu hvernig þetta fer
sjáðu hvernig þetta fer
þetta fer
. . .
|
|
Sex eða sjö á suðurleið
seint um haust á stórum bát
sáu ljós í svartri hríð
Komust í land með draug
með draug
. . .
|
|
Saltillo í Tampico í Chalico í Mexíkó ,ég datt
niður og dó í Saltillo í Tampico í Chalico
Mexíkó í Chalico í Tampico í Saltillo, ég datt
niður og dó í Mexíkó í Chalico í Tampico
Tampico í Chalico í Mexíkó í Saltillo, ég datt
niður og dó í Tampico í Chalico í Mexíkó
Casino í Monte Carlo í Mónakó í Mónakó, ég datt
niður og dó í Casino í Monte Carlo í Mónakó
Mónakó í Mónakó í Monte Carlo í Casino, ég datt
niður og dó í Mónakó í Mónakó í Monte Carlo
Casino í Mónakó í Mónakó í Monte Carlo, ég datt
niður og dó í Casino í Mónakó í Mónakó
Gíbraltar og Kandahar og Zanzibar og í Dakar
ég dó líka þar
Í Dakar og Zanzibar og Kandahar og Gíbraltar
ég dó líka þar
Zanzibar og í Dakar og Gíbraltar og Kandahar
ég dó líka þar
í Mexíkó í Mexíkó í Mónakó í Mónakó
í Mónakó í Mónakó í Mexíkó í Mexíkó
Ég datt niður og dó
í Mexíkó í Mónakó
í Mónakó í Mexíkó
. . .
|
|
Ég vil grafa holu
ég vil grafa stóra holu útí sveit
ég ætla að búa til stóran moldarhaug
hversu stóran enginn veit
Ég ætla að fylla uppí bæjarlækinn
og búa til bæjarstöðuvatn
ég á bát og ég á árar
og ég á árar og ég á bát
ég á bát og ég á árar
og ég á árar og ég á bát.
Ég á bát og ég á árar
og ég á árar og ég á bát
ég á bát og ég á árar
og ég á árar og ég á bát
. . .
|
|
. . .
|